Fréttir

Æfingartafla Blakdeildar Keflavíkur veturinn 2018-2019
Blak | 3. september 2018

Æfingartafla Blakdeildar Keflavíkur veturinn 2018-2019

Æfingatafla Blakdeildar Keflavíkur er komin út, með fyrirfram um breytingar.

Æfingar hefjast í dag mánudaginn 3. september og tökum við vel á móti núverandi iðkendum og bjóðum nýja iðkendur sérstaklega velkomna. Æfingatöfluna má nálgast hér.

Skráning iðkenda:

Skráning iðkenda fer fram í gegnum Nóra skráningarkerfið og þurfa allir iðkendur Blakdeildar Keflavíkur að vera skráðir. Opnað hefur verið fyrir skráningu. Leiðbeiningar um skráningu má sjá hérna . 

Nórakerfið er hægt að nálgast á slóðinni https://keflavik.felog.is/

Æfingagjöld 2018-2019

Æfingagjöld eru sem hér segir veturinn 2018-2019 og er æfingatímabilið skipt í haustönn og vorönn.

  • Yngri flokkar (börn 6 - 14 ára): 10.000 kr. haustönn
  • Stelpur/konur og strákar/karlar Íslandsmót (15 og eldri): 20.000 kr. haustönn
  • Konur/Karlar Íslandsmót með Öldungamóti. Þetta er fyrir þá sem vija greiða 5.000 kr. meira upp í þátttökugjaldið á Öldung 2019: 25.000 kr. haustönn
  • Nýliðar/Öldungar(fyrir þá sem ekki vilja keppa á Íslandsmóti): frítt verður fram að áramótum

Hægt er að velja um greiðslu með kreditkorti eða fá sendan greiðsluseðil í heimabanka. Boðið er uppá að skipta greiðslum niður í allt að 4 greiðslur.  

Hlökkum til að sjá sem flesta í salnum enda stefnir í frábæran blakvetur!

Blakdeild Keflavíkur