Blakfólk ársins 2018
Það var úr sterkum hópi kvenna og karla að velja þegar blakfólk ársins 2018 var valið fyrir Keflavík, enda höfðu
bæði liðin endað í 1. sæti í sinni deild á Íslandsmóti vetrarins auk þess sem konurnar unnu sína deild á
Öldungamóti ársins.
Einstaklingarnir sem urðu fyrir valinu hafa nokkra sameiginlega kosti enda bæði dugleg að aðstoða við öll verkefni Blakdeildar Keflavíkur. Þau hafa bæði tekið miklum framförum í íþróttinni og eru góðir liðsmenn sem sýna liðsfélögum stuðning, vinskap og eru alltaf til staðar fyrir liðið sitt.
Kristinn Rafn Sveinsson hefur mest spilað sem miðju-smassari en leysir aðrar stöður einnig vel ef þess þarf. Hann er leikmaðurinn sem flýgur eftir gólfinu og kastar sér í alla bolta.
Auður Eva Guðmundsdóttir hefur ekki æft blak lengi en hefur mikinn metnað og keppnisskap. Hún leysti hlutverk
sitt sem miðju-smassari mjög vel og er leikmaður sem gefst aldrei upp.