Fréttir

Búið að opna fyrir skráningu haustannar í öllum flokkum
Blak | 14. september 2019

Búið að opna fyrir skráningu haustannar í öllum flokkum

Æfingar hófust í byrjun september og tökum við vel á móti núverandi iðkendum og bjóðum nýja iðkendur sérstaklega velkomna. Æfingatöfluna má nálgast hér.

Skráning iðkenda:

Skráning iðkenda fer fram í gegnum Nóra skráningarkerfið og þurfa allir iðkendur Blakdeildar Keflavíkur að vera skráðir. Opnað hefur verið fyrir skráningu. 

Nórakerfið er hægt að nálgast á slóðinni https://keflavik.felog.is/

Æfingagjöld 2019-2020

Æfingagjöld eru sem hér segir veturinn 2019-2020 og er æfingatímabilið skipt í haustönn og vorönn.

  • Barna flokkur (börn 6 - 9 ára): 10.000 kr. haustönn og 10.000 kr. vorönn
  • Yngri flokkar (börn 10 - 15 ára): 12.500 kr. haustönn og 12.500 kr. vorönn
  • Stelpur/konur og strákar/karlar Íslandsmót (16 og eldri): 25.000 kr. haustönn og 30.000 kr. vorönn
  • Konur/Karlar Íslandsmót með Öldungamóti. Þetta er fyrir þá sem vija greiða 5.000 kr. meira upp í þátttökugjaldið á Öldung 2020: 30.000 kr. haustönn

Hægt er að velja um greiðslu með kreditkorti eða fá sendan greiðsluseðil í heimabanka. Boðið er uppá að skipta greiðslum niður í allt að 2 greiðslur ef æfingargjöld eru hærri en 10.000 kr. og niður í allt að 4 greiðslur ef æfingargjöld eru hærri en 20.000 kr.    

Hlökkum til að sjá sem flesta í salnum enda stefnir í frábæran blakvetur!

Blakdeild Keflavíkur