Fréttir

Blak | 30. mars 2026

Vormót yngri flokka

Helgin sem leið var stór og eftirminnileg hjá okkur í Blakdeild Keflavíkur 
Við héldum í fyrsta sinn Vormót yngri flokka (U12 & U14) úti í Garði og það var sannarlega bæði krefjandi og ótrúlega skemmtilegt verkefni. Alls tóku 24 lið þátt, 125 keppendur mættu til leiks og þegar mest var voru yfir 200 manns í húsinu. Spilaðir voru 80 leikir í fjórum flokkum – og stemningin allan tímann alveg frábær 
Undirbúningurinn var ævintýri út af fyrir sig. Sem algjörir byrjendur í mótshaldi lentum við í ýmsum áskorunum og stundum var eiginlega hálf ótrúlegt að þetta væri allt að ganga upp. En eitt sem blakið kennir manni er að leysa vandamálin sem koma upp – og það gerðum við, saman 
Við erum ótrúlega þakklát fyrir allan stuðninginn sem við fengum á leiðinni. Suðurnesjabær og Gerðaskóli gerðu okkur kleift að halda mótið og Svæðistjóri íþróttahéraða á stóran þátt í því að hjálpa okkur að koma þessu verkefni af stað. Þá á starfsfólk Íþróttamiðstöðvar Garðs og skólans í Garði miklar þakkir skildar fyrir sína aðstoð 🙏
Við fengum líka ómetanlega hjálp frá Blakdeild Fylkis og Blakdeild Aftureldingar, ásamt BLÍ - Blaksamband Íslands og fleirum sem lögðu hönd á plóg. Þetta sýnir hvað blaksamfélagið er sterkt ❤️
Við viljum einnig senda sérstakar og persónulegar þakkir til SportHero fyrir að mæta og taka myndir af keppendum í leik – það skiptir gríðarlega miklu máli að ná þessum augnablikum og gefa krökkunum minningar sem þau geta átt áfram 📸✨
Veðrið reyndi aðeins á okkur þegar gul viðvörun var gefin út og óvissa um Reykjanesbrautina skapaðist. Við tókum þá ákvörðun að færa síðustu umferðir laugardagsins yfir á sunnudaginn – sem þýddi lengri en jafnframt enn skemmtilegri blakdag. Sem betur fer komust allir heilir heim 🙌
Við höfum verið að heyra ótrúlega falleg viðbrögð eftir mótið og það gleður okkur mikið. Sjoppan sló í gegn þar sem foreldrar lögðu mikla ást í heimabakað góðgæti, og við erum einnig afar þakklát styrktaraðilum okkar – Skólamat, Nettó, Sigurjóns bakarí og Langbest 💙
Þetta var okkar fyrsta mót af þessari stærðargráðu og það sem situr eftir er fyrst og fremst stoltið. Stoltið yfir því að hafa tekið þetta skref, að hafa séð hvað við getum og hversu mikilvæg svona verkefni eru fyrir uppbyggingu deildarinnar. En umfram allt gleðin – allir skemmtu sér og fóru glaðir heim 😊
Hvað er svo betra en að eyða helgi í blak? Ekkert 🏐✨
Að lokum viljum við þakka öllum sjálfboðaliðunum sem lögðu á sig ómetanlega vinnu fyrir og á meðan mótinu stóð. Án ykkar hefði þetta einfaldlega ekki verið hægt ❤️

 

Myndasafn